Þjónusta

Skipskistuskoðun og sjúkrakassar

Við förum yfir sjúkrakistur í skip í öllum stærðum; A, B og C. Hægt er að koma með skipskisturnar til okkar eða  við komum í skipin og yfirförum þar, allt eftir samkomulagi.

Útbúum einnig sjúkrakassa fyrir heimili, sumarbústaði, bíla,  og vinnustaði eftir þörfum hvers og eins.

Lyfjaskömmtun

Lyfjaskömmtun er góður kostur fyrir þá sem taka lyf að staðaldri. Kosturinn við að vera í lyfjaskömmtun er að auðvelt er að sjá hvort lyfin hafa verið tekin samkvæmt fyrirmælum eða hvort gleymst hefur að taka skammt. 

Þeir sem vilja koma í lyfjaskömmtun geta beðið lækninn sinn um að senda skammtalyfseðla til okkar og hringja svo í síma 467-2222 eða senda tölvupóst á siglufjardarapotek@simnet.is til að ákveða byrjunardag og ákveða fyrirkomulag afhendingar.